sunnudagur, 6. mars 2016

Vetrarferð á Fellsmörk

Fellsmörk 5. mars 2016

Undir stjörnubjörtum vetrarhimni á Fellsmörk

Færð var allgóð inn í Fellsmörk - þ.e.a.s. inn í Hlíðina en ekki var kannað vegaástand annars staðar. Harður snjór var á vegi en auðvelt að aka flesta slóða á litlum jepplingi.

Tilraun til Fellsmerkurbloggs

Fellsmörk er með vefsíðu sem hefur gefið góða yfirsýn yfir það sem er gert á Fellsmörk en á stundum hefur gengið of róleg að uppfæra heimasíðuna og það er frekar flókið þegar ekki er notuð einfaldasta gerð af vefumsjónarkerfi. Lénið sem vefurinn var á eirasi.net tapaðist fyrir rúmu ári en var færður á: https://notendur.hi.is/~ers12/fellsmork/
Einnig er grúppusíða á Facebook: https://www.facebook.com/groups/Fellsmork/. Þar er afar einfalt að setja inn efni en yfirsýn og leiðir til að skoða hvað hefur verið gert eru oft erfiðar.

Hér er því tilraun til að nota bloggsíðu til að halda utan um hvað gert er.